Íslenskir fuglar
Íslenskir fuglar er endurgerð á handriti Benedikts Gröndal sem varðveitt hefur verið hjá Náttúrufræðistofnun Íslands en handritið var fullgert árið 1899. Í því eru 100 myndir af íslenskum fuglum og upplýsingar um hvern fugl, skrautritaðar af höfundinum auk þess sem titilsíða og formáli eru skrautritið með sömu hönd. Teikningar Gröndals eru einstaklega fallegar og gefur hann smáatriðum fuglategundanna mikinn gaum og teiknar jafnvel egg þeirra á þónokkrar myndanna.

Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) er eitt af höfuðskáldum þjóðarinnar en var auk þess frumkvöðull í söfnun náttúrugripa og helsti hvatamaður að stofnun Hins íslenska náttúrufræðifélags árið 1889 og fyrsti formaður þess. Eitt helsta verkefni hans sem formanns Náttúrufræðifélagsins var að koma á fót náttúrugripasafni í Reykjavík og samhliða því vann hann að skráningu dýra og plantna með lýsingum og teikningum. Eftir Benedikt liggja nokkur handrit sem og stakar myndir þar sem hann teiknaði íslensk dýr, fiska, fugla og gróður en aðeins eitt handritanna hefur hingað til verið gefið út, Dýraríki Íslands - teiknibók Benedikts Gröndls, sem gefin var út á 150 ára afmæli hans 1976.

Crymogea gefur Íslenska fugla út í tveimur útfærslum. Sérstök hátíðarútgáfa er endurgerð handritsins í raunstærð og verður í vönduðu, handgerðu bandi. Öll umgjörð þessarar útgáfu verður eins vönduð og glæsileg og handriti sem þessu sæmir. Hátíðarútgáfan verður einungis framleidd í 100 tölusettum eintökum sem verða aðeins til sölu hjá útgefanda.

Í almennri útgáfu bókarinnar verða teikningar Benedikts í hávegum hafðar en upplýsingatexti verður á nútímaletri. Þessi útgáfa Íslenskra fugla verður fáanleg í bókaverslunum um land allt.

Tekið er á móti pöntunum á hátíðarútgáfunni hjá útgefanda. Áhugasamir geta fest sér eintak með því að senda póst þess efnis á crymogea@crymogea.is eða með því að hringja í síma 511 0910.

Endurgerð handrits Benedikts Gröndals er styrkt af Þjóðhátíðarsjóði.
     

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is