Aurora
Ljósmyndir eftir Ragnar Th. Sigurðsson, Snævarr Guðmundsson, David Anderson og Sigurð Stefnisson

Texti eftir Alv Egeland. 


AURORA er fyrsta stóra ljósmyndabókin um norðurljósin sem gefin er út. Norðurljósin eru meðal mestu náttúruundra jarðar. Þau m yndast þegar svokallaður sólarvindur mætir segulsviði jarðar og eru einungis sýnileg á 500 km breiðu svæði umhverfis segulpóla jarðar. Undanfarin ár hafa ljósmyndarar beint kröftum sínum í meiri mæli frá því að ljósmynda norðurljósin í vísindalegum tilgangi og einbeitt sér að því að fanga fegurð þeirra og margbreytileika.

Í bókinni Aurora má finna úrval mögnuðustu norðurljósamynda sem teknar hafa verið allt frá fjalltoppum Alaska til jökla og el dfjalla Íslands og skóga Norður- Skandinavíu.

310×310 mm
126 blaðsíður
60 ljósmyndir í lit

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is