Bókaútgáfan Crymogea heldur Listabókahelgi Crymogeu, helgina 3.-5. febrúar, í húsakynnum útgáfunnar að Barónsstíg 27. Opið er frá klukkan 9.00-18.00 föstudag og 11.00 til 16.00 laugardag og sunnudag; aðeins þessa einu helgi.
Á Listabókahelgi Crymogeu má nálgast mikið úrval íslenskra myndlistarbóka og bókverka á einum stað. Sjálfstætt starfandi listamenn og fræðimenn, auk fjölmargra forlaga og safna hafa dregið upp bækur af lagerum sínum sínum sem sumar hverjar hafa ekki verið á markaði í áraraðir. Einnig má finna ýmsar gersemar sem eru aðeins til í örfáum eintökum. Listabókahelgi Crymgeu býður því ekki aðeins upp á tækifæri til að gera góð kaup því einnig má finna týndar perlur sem erfitt er að nálgast á almennum markaði.
Á Listabókahelgi Crymogeu munu myndlistarmennirnir Katrín I Jónsdóttir Hjördísardóttir og Ragnhildur Jóhanns halda gjörninga til heiðurs bókverkinu. Gjörningarnir fara fram að Barónsstíg 27, laugardaginn 4. febrúar og sunnudaginn 5. febrúar klukkan 14.00.
Kærar bókakveðjur,
Margrét Áskelsdóttir
Kynningarstjóri Crymogeu