Books are meant to be beautiful

We live in a visual world. How we display the visual matters. We believe that publishing books on the visual world deepens our perception on what is a photograph, what is a piece of art, what is good design and good architecture.

Áfram Afríka komin í búðir
6/11/2010
Bókin Áfram Afríka eftir Pál Stefánsson er komin í allar helstu bókaverslanir á landinu.

Áfram Afríka er í senn óður til knattspyrnunnar, útbreiddustu íþróttar heims, og hinnar ótrúlegu heimsálfu Afríku þar sem fótboltinn er miklu meira en bara íþrótt. Formála ritar afríski leikmaður ársins 2009, Didier Drogba, fyrirliði landsliðs Fílabeinsstrandarinnar, og rennur hluti af ágóða af sölu bókarinnar til styrktar fólbotaskóla hans á Fílabeinsströndinni.

Páll Stefánsson fylgir boltanum um lönd Afríku og tekur lesandann með í ferðalag um álfuna alla, frá Grænhöfðaeyjum og Senegal í vestri til Eþíópíu og Tansaníu í austri, frá Marokkó og Egyptalandi í norðri til Suður-Afríku. Bókin dregur fram kraftinn og gleðina í daglegu lífi Afríkubúa sem svo oft dylst á bak við fréttir af fátækt, ófriði og óáran og gefur algerlega nýja innsýn í fótboltamenningu álfunnar. Í knattspyrnunni birtist sú framtíð sem Afríka á skilið.

Inngangurinn er eftir einn þekktasta rithöfund Afríku, Orange-verðlaunahafann Chimamanda Ngozi Adiche frá Nígeríu, og fremsti sérfræðingur heims í afrískum fótbolta, íþróttafréttamaðurinn Ian Hawkey, skrifar ágrip af sögu knattspyrnunnar í Afríku. Áfram Afríka eftir Pál Stefánsson er eitt viðamesta ljósmyndaverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Um 200 myndir bókarinnar eru valdar úr safni um 35.000 ljósmynda sem teknar voru á nærri þriggja ára tímabili í 14 löndum Afríku.

Bókin hefur þegar fengið lofsamlega dóma og segir Egill Helgason meðal annars um bókina: "Dásamlega falleg og heillandi bók, full af lífi og leik – og bjartsýni". Umfjöllun Egils í heild sinni má finna hér.

Áfram Afríka kemur út bæði á íslensku og ensku og kostar 7.990 kr.

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is