Ragnar
Axelsson er einn þekktasti fréttaljósmyndari Íslands. Tengsl manna og
náttúru eru honum hugleikin en hann hefur í yfir 15 ár ljósmyndað fólk
og náttúru á Norður-Atlantshafssvæðinu, á Íslandi, Grænlandi og í
Færeyjum auk þess sem hann hefur unnið víðar á norðu
r
löndum, í Indónesíu og Síberíu.
Ragnar
hefur unnið fyrir fjölda blaða og tímarita en hefur verið fastráðinn
hjá Morgunblaðinu frá 1976. Myndir eftir hann hafa birst í fjölda
virtra tímarita s.s. Life, National Geographic, Le Figaro, Stern, La
Vanguardia og Time. Hann hefur að auki hlotið fjölda verðlauna og
viðurkenninga fyrir myndir sínar.