Eggert Pétursson
Eggert Pétursson hefur skipað sér sess meðal fremstu málara samtímans og hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir sérstæð málverk af fínlegum íslenskum jurtum í villtri náttúru Íslands.

Eggert nam við Myndlistarskólann í Reykjavík á árunum 1974 til 1978, stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1976 til 1979 en hélt þá til Hollands í framhaldsnám við Jan Van Eyck Ac ademie í Maastricht en þaðan útskrifaðist hann 1981.

Eggert hefur haldið ótal einka- og samsýninga og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína, meðal annars önnur Carnegie Art Award árið 2006.

Þorsteinn J. ræðir við Eggert Pétursson, í þættinum Káta maskínan (2009)



Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is