Crymogea
Bókaútgáfan Crymogea var stofnuð árið 2007 af Snæbirni Arngrímssyni og Kristjáni B. Jónassyni, sem jafnframt er útgáfustjóri. Crymogea gefur út bækur um ljósmyndun, list og hönnun.

Crymogea vinnur með nokkrum þekktustu og fremstu ljósmyndurum Íslendinga á borð við Ragnar Axelsson, Pál Stefánsson og Vigfús Birgisson og gefur út bækur með verkum myndlistarmanna á borð við Eggert Pétursson, Guðrúnu Einarsdóttur og Kristinn E. Hrafnsson.

Crymogea gefur í samstarfi við Listasjóð Dungal út glæsilega ritröð um Íslenska samtímalistamenn og er útgefandi sýningarskrár Blaðaljósmyndarafélagi Íslands, Myndir ársins. Crymogea þýðir Ísland. Arngrímur Jónsson lærði (1568-1648) valdi þessa grísku þýðingu á heiti landsins sem titil á sitt höfuðrit, Crymogaea sive rerum Islandicarum libri III , sem fyrst kom út í Hamborg árið 1609. Arngrímur Jónsson er verndari útgáfunnar.

Crymogea rekur verslun og sýningarrými á Barónsstig 27.

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is