Veiðimenn norðursins
Ragnar Axelsson
Texti eftir Mark Nuttall

Norðurheimskautið hlýnar hraðar en nokkuð annað svæði jarðar. Þessar hröðu loftslagsbreytingar valda gríðarlegum breytingum á vistfræði svæðisins og um leið á samfélag Inúíta sem reiða sig á norðurheimskauts ísinn þeim til lífsbjargar og er hann stór hluti af þeirra menningu. Inúítar eru fyrsta þjóð jarðar sem tekst á við stórkostlegar umhverfisbreytingar sem fyrirséðar eru á þessari öld. Fréttir af bráðnun íss á norðurslóðum eru oft svo fjarlægar að erfitt er að sjá fyrir sér að slíkir atburðir hafi áhrif á samfélög manna. Inúítar hafa hins vegar sögu að segja sem gæti brátt orðið örlög alls mannkyns. Því má segja að Inúítar séu mannlegt andlit loftslagsbreytinga.

Ragnar Axelsson ljósmyndari , RAX , hefur undanfarin 30 ár fylgst með og skráð breytingar á lífsháttum á Norðurheimsskautssvæðinu. Stórfenglegar ljósmyndir hans frá Kanada, Alaska og Grænlandi bera vitni menningu, náttúrulífi og umhverfi sem mun sannarlega breytast í mjög náinni framtíð þannig að eftir stendur óþekkjanlegt svæði frá því sem áður var .

Mark Nuttall er prófessor í mannfræði við University of Alberta í K anada. Eftir hann liggur fjöldi fræðigreina og skrifa um Norðurheimskautið. Vinna hans á Norðurheimskautinu, við Norður-Atlantshaf og vestur- og norðurhluta Kanada snýst að mestu um umhverfisbreytingar, áhrif loftslagsbreytinga á innfædda og lífsviðurværi þeirra og mannlegar víddir sjálfbærni- og umhverfismála. Hann hefur búið og starfað á Grænlandi, Alaska, Kanada, Skotlandi og Finnlandi.

290×315 mm
256 blaðsíður
200 ljósmyndir í lit og svart/hvítu

Október 2010.

***** 
"Gerir það sem góðar bækur gera best. Sleppa ekki lesandanum fyrr en síðustu blaðsíðunni hefur verið flett."
MÁI - Morgunblaðið

"Stórbrotið viðfangsefni, skýr hugmynd, persónuleg sýn, skarpur boðskapur. Allt þetta hafa ljósmyndir RAX"
Leica World

"Brimafull af dramatískum svipmyndum deyjandi menningar veiðimanna á Grænlandi."
David D'Arcy - Artnet





Panta bókina

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is