Þjóðfáni Íslands. Notkun, virðing og umgengni Hátíðarútgáfa
Þjóðfáni Íslands. Notkun, virðing og umgengni er myndræn framsetning á lögum og reglum um meðferð íslenska þjóðfánans. Bókinni er ætlað að sýna með skýrum hætti að það er auðvelt að umgangast íslenska fánann af virðingu og að reglur um meðferð hans eru byggðar á almennri skynsemi.

Þessi sérstaka hátíðarútgáfa inniheldur 100 tölusett og handinnbunin eintök í leðri. Allt handbragð við bókbandið er eins og best verður á kosið og leðrið í bókunum er sérvalið og einstaklega fallegt.

Bókin tekin saman og hönnuð af Herði Lárussyni. Hann gaf út árið 2008 bókina Fáninn / The Flag um tillögur sem bárust fánanefndinni 1913 að hönnun íslenska fánans og var valinn besti prentgripur ársins 2008 í árlegri samkeppni Félags íslenskra teiknara.

Formála ritar frú Vigdís Finnbogadóttir.

Í Þjóðfána Íslands eru fánar allra fullvalda ríkja heimsins sýndir með íslenskum ríkjanöfnum eins og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur skilgreint þau.

Leðurinnbundin hátíðarútgáfa Þjóðfána Íslands fæst eingöngu hjá Crymogeu, Barónsstíg 27.
Panta bókina

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is