Path - Journey to the Center
Elín Hansdóttir
Rebecca Solnit

Í bókverkinu Path renna hlutlægir og huglægir þættir innsetningarinnar PATH saman í eina heild, sem einskonar ferðalag fyrir tilstilli texta og sjónrænna þátta. Bókverkið er myndhverfing fyrir þátt minnisins í listrænni upplifun. Skynrænir þættir renna saman í eina heild sem markast af formgerð innsetningarinnar og reynsluheimi þess sem upplifir verkið.

Elín Hansdóttir (f. 1980) hefur á undanförnum árum unnið að stórum innsetningum sem byggja á rannsóknum á rýminu. Hún býr og starfar í Berlín.

Rebecca Solnit (f. 1961) býr og starfar í San Francisco. Hún hefur getið sér gott orð fyrir bækur sínar, svo sem Wanderlust og A Fieldguide to Getting Lost.

Hönnun: Gunnar Vilhjálmsson

170 x 240 mm
28 blaðsíður
2 útfellur, 6 blaðsíður hvor
Saumuð kilja með uppábrotum

Enska
Útgáfudagur: 2012

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is