
Blómamyndir Eggerts Péturssonar eru ein þekktustu og dáðustu verk íslenskrar samtímalistar. Með dáleiðandi fjölbreytni sinni draga þau áhorfandinn inn í takmarkalausa gróðurveröld sem á sér engar hliðstæður. Fyrir þessa glæsilegu útgáfu voru valin öll helstu og þekktustu málverk Eggerts og þau prentuð í samræmi við umfang sitt í einni stærstu bók sem komið hefur út hérlendis. Í greinargóðum formála skýrir listamaðurinn út forsendur verkanna. Hver mynd geymir sérstakt gróðurkerfi. Hver planta er máluð í raunstærð sinni og aldrei er notast við klassíska fjarvídd. Við erum minnt á það ríkidæmi sem býr í umhverfi okkar og þá einstöku sýn sem hefur gert Eggerti kleift að skapa nýjan heim úr fábrotinni flóru.