Nara - The Crated Rooms in Iceland
Fyrir sýningu Yoshitomo Nara í Listasafni Reykjavíkur haustið 2009 vann hann með Graf hópnum eins og hann hefur svo oft gert. Í þetta skiptið var undirbúningurinn eilítið öðruvísi en áður en sýningin var öll undirbúin fyrirfram í Japan og svo send til Reykjavíkur þar sem helmingur hennar var sett upp í flutningsgámum með gluggum, hurðum og götum. Nara naut aðstoðar Hideki Toyoshima við undirbúning kassanna og gámanna áður en þeir voru fluttir á sýningarstað. Myndir hanga utan á gámunum og fígúrur leynast í krókum og kimum kassanna.
Bókin er gefin út í tilefni af sýningunni en hún endurspeglar tilvísanir Nara í barnabókateikningar. Harðspjalda gluggabók minnir á myndaalbúm fyrir börn.

Yoshitomo Nara (f. 1959) er meðal þekktustu samtímalistamanna heimsins. Hann býr og starfar í Tókíó í Japan.

Yoshitomo Nara + YNG
The Crated Rooms in Iceland
Texti eftir Hafþór Yngvason, Markús Þór Andrésson, Jón Proppé, Úlfhildi Dagsdóttur og Godd
Harðspjaldabók með gluggum
230 mm x 205 mm
175 x 170 mm (innfelld textablöð)
28 bls. / 4 bls. (innfelldar myndir) / 8 bls. (innfelldar myndir) / 12 bls. (innfelld textablöð)
Enska
Útgáfudagur: 2012

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is