|
Moldarljós er samvinnuverkefni tónskáldsins Hauks Tómassonar og myndlistarmannsins Eggerts Péturssonar.
Haukur fylgdist með Eggerti mála og Eggert hafði tóna Hauks í eyrunum á meðan hann vann. Þannig fléttaðist verkið saman, eða verkin því málverk Eggerts urðu fjögur og tónverk Hauks er í fjórum hlutum sem kallast á við hverja mynd. Bygging tónverksins og myndanna fylgist því að í fleiri en einum skilningi. Afrakstur vinnunar settu þeir upp í Listasafni Íslands, þar sem verk Eggerts voru sýnd og Caput hópurinn undir stjórn Guðna Franssonar flutti tónlistina eftir Hauk Tómasson. Nú hafa verkin verið gefið út á geisladiski og myndverk Eggerts prýða umbúðir þessa magnaða verks.
Tónverkið Moldarljós eftir Hauk Tómasson fékk tvær tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna 2011 - hljómplata ársins og tónverk ársins í flokknum sígild- og samtímatónlist.
Diskurinn kemur út í takmörkuðu upplagi, eða aðeins 500 tölusettum og árituðum eintökum.
Haukur Tómasson tónskáld er fæddur árið 1960. Hann nam við Tónlistarskólann í Reykjavík, í Þýskalandi, Hollandi og lauk mastersprófi í tónsmíðum frá San Diego í Kaliforníu. Haukur hefur samið jöfnum höndum sönglög, sinfóníur og einleiksverk af ýmsu tagi, en þekktasta verk hans er óperan Fjórði söngur Guðrúnar, en fyrir það hlaut Haukur Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2004.
Eggert Pétursson myndlistarmaður er fæddur árið 1956. Hann nam myndlist við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík og síðar í Hollandi. Eggert hefur haldið fjölda einkasýninga og gefið út bækur, meðal annars teiknað Flóru Íslands. Hann er þekktastur fyrir blómamálverk sín.
Tónlist: Haukur Tómasson
Flytjendur: Caput hópurinn undir stjórn Guðna Franzsonar
Málverk: Eggert Pétursson
|