
Harpa Árnadóttir
Júní er einstakt samspil vatnslitamynda og ljóðrænna dagbókarbrota þar sem Harpa Árnadóttir fangar andblæ íslenska sumarsins. Bókin er afrakstur vinnustofudvalar hennar í Skagafirði vikurnar þegar sólargangur er lengstur, blóm springa út og grös stinga höfðum upp úr sinunni. Á ferðum sínum um land og fjöll skráir hún undrin sem verða á vegi hennar og alls staðar skín í gegn að þessi veröld er hverful og brothætt. Innan skamms er sumarið liðið.
Júní er ekki lík neinni annarri bók. Hún líkist innbundu safni nýgerðra vatnslitamynda og textablaða sem smeygt hefur veirð inn í möppu. Stór bunki af hrífandi textum og myndum sem lýsa daglegri reynslu af umhverfi og náttúru. Því sem gerir sumarið að sumri: fiðrildi, fífu og fjalldalafífli.
Harpa Árnadóttir er fædd árið 1965 á Bíldudal í Arnarfirði. Eftir háskólanám í sagnfræði og bókmenntum fór hún í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi við Listaháskólann í Valand, Gautaborg. Harpa hefur sýnt víða og eru verk hennar í eigu ýmissa opinberra safna og einkasafnara á Íslandi og í Svíþjóð. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir teikningar hjá Þjóðlistasafni Svíþjóðar.
Júní kemur út tengslum við sýningu Hörpu, Mýrarljós, í Listasafni ASÍ sem er hluti af Listahátíð 2011.
166 bls.
300 x 210 mm
Hönnuðir: Hildigunnur Gunnarsdóttir og Snæfríð Þorsteins
Ensk þýðing: Sarah Brownsberger