
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson
Íslenskir fuglar eftir Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826–1907) er eitt af hans helstu verkum en hefur verið nánast óþekkt jafnt meðal almennings sem fræðimanna. Í bókinni er birt heildaryfirlit yfir alla fugla sem sést höfðu á Íslandi svo vitað væri fram til ársins 1900 og teiknar Benedikt myndir af þeim öllum, lýsir þeim og segir frá því helsta sem um þá var vitað. Hátíðarútgáfan sýnir handritið í sinni upprunalegu stærð og umfangi, eins og Benedikt gekk frá því. Hún kemur út í 100 tölusettum eintökum sem eru handinnbundin í íslenskt sauðskinn frá Loðskinni á Sauðárkróki og í viðarkassa. Öll vinnsla bókarinnar fer fram hérlendis. Hér um að ræða einn stærsta og glæsilegasta prentgrip íslenskrar útgáfusögu.
Íslenskir fuglar eru gefnir út í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands, en handrit bókarinnar hefur verið í vörslu stofnunarinnar í yfir hálfa öld. Sérfræðingar stofnunarinnar unnu að útgáfu hennar og ritun skýringa og er bókinni fylgt úr hlaði með ítarlegum eftirmála eftir Kristin Hauk Skarphéðinsson fuglafræðing þar sem gerð er grein fyrir stöðu fuglarannsókna á Íslandi undir lok 19. aldar og þátt Benedikts í sögu íslenskra náttúruvísinda.
Benedikt Gröndal var einn mesti fjölfræðingur og hæfileikamaður íslenskrar menningarsögu. Hann er eitt af höfuðskáldum þjóðarinnar, höfundur sígildra lausamálsverka á borð við Heljarslóðarorrustu og Dægradvöl. Hann var fyrstur Íslendinga til að ljúka meistaraprófi í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla, samdi kennslubækur í náttúrufræðum og var listaskrifari og teiknari: mótaði til að mynda eina kunnustu tákngerð íslensks þjóðernis, fjallkonuna. Benedikt var frumkvöðull í söfnun náttúrugripa og helsti hvatamaður að stofnun Hins íslenska náttúrufræðifélags árið 1889 og fyrsti formaður þess. Eitt helsta verkefni hans sem formanns Náttúrufræðifélagsins var að koma á fót náttúrugripasafni í Reykjavík og samhliða því vann hann að skráningu dýra og plantna með lýsingum og teikningum. Eftir Benedikt liggja nokkur handrit sem og stakar myndir þar sem hann teiknaði íslensk dýr, fiska, fugla og gróður. Tvö helstu handritin eru
Dýraríki Íslands sem kom út árið 1976 og
Íslenskir fuglar sem nú er loks út komin á bók.
Hönnun
Íslenskra fugla er í höndum hönnunartvíeykisins Snæfríðar Þorsteins og Hildigunnar Gunnarsdóttur sem fengu Menningarverðlaun DV fyrir verk sín, þar á meðal fyrir hönnun Íslenskra fugla. Crymogea er stolt af því að hafa unnið með þeim að nokkrum glæsilegum verkum á undanförnum árum sem hafa skapað ný viðmið í hönnun íslenskra bóka.
246 x 380 mm
480 blaðsíður
Handinnbundin í leður og í viðaröskju
Íslenska