Benedikt Gröndal
Aldamótaárið 1900 lauk Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) við að teikna og lýsa öllum íslenskum fuglum sem hann vissi til að sést hefðu á Íslandi. Handritið að þessu mikla stórvirki var aldrei gefið út og fáar myndir úr því hafa birst. Þetta glæsilega verk, sem ber í senn vitni listfengi Benedikts, lifandi stílgáfu hans og færni sem skrautritara og fræðimanns, kemur nú loksins fyrir almenningssjónir. Útgáfan er gerð í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands sem hefur varðveitt þennan dýrgrip um áratuga skeið. Bókin kemur út í tveimur útgáfum. Í sérstakri hátíðarútgáfu er handritið sýnt í raunstærð eins og höfundurinn gekk frá því en í almennri útgáfu eru myndirnir prentaðar með texta Benedikts settum með prentletri. Í báðum útgáfum eru ítarlegar skýringar og eftirmáli.
Eftirmáli: Kristinn Haukur Skarphéðinsson
Skýringar: Kristinn Haukur Skarphéðinsson & Ævar Petersen
Hönnun: Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
Almenn útgáfa
240 x 305 mm
265 blaðsíður
100 litmyndir
Innbundin
Íslenska
Sérstök útgáfa á endurgerðu upprunalegu handriti, gefin út í 100 tölusettum eintökum
246 x 380 mm
480 blaðsíður
Íslenska
Útgáfudagur: 6 október 2011