
Eggert Pétursson
Texti eftir Ágúst H. Bjarnason
Einstök málverk Eggerts Péturssonar af íslenskri flóru hafa markað honum sess sem einn kunnasti íslenski listamaður samtímans. Áhugi hans á grasafræði hefur frá upphafi verið leiðarstef í verkum hans, en Eggert vann bókverk með pressuðum blómum og sýndi ljósmyndir af jurtum áður en hann sneri sér að málverkunum. Mikilsverður áfangi á listrænum ferli hans voru teikningar sem hann vann fyrir bókina Íslensk flóra með litmyndum eftir Ágúst H. Bjarnason sem út kom árið 1983. Alls teiknaði Eggert 271 litmynd í raunstærð af íslenskum háplöntum á blöð í stærðinni A3, 420×297 mm, árin 1982-83. Myndirnar voru birtar mikið smækkaðar í Íslensk flóra og hafa aldrei allar komið fyrir augu almennings í sinni réttu stærð.
Nú eru flóruteikningar Eggerts Péturssonar í fyrsta sinn gefnar út í heild sinni í upprunalegri stærð á einni bók. Afraksturinn er ein glæsilegasta útgáfa á verkum íslensks listamanns fyrr og síðar. Teikningunum er raðað í grasafræðilegri röð og hverri teikningu fylgir texti Ágústs H. Bjarnasonar um viðkomandi háplöntu.
Bókin kemur út í aðeins 500 tölusettum eintökum, árituðum af Eggerti. Bækurnar eru handinnbundnar og í vönduðum línklæddum viðarkassa.
301x403 mm
560 blaðsíður
Þorsteinn J. Vilhjálmsson ræðir við Eggert Pétursson í Kátu maskínunni (2009).

