Equivocal
Katrín Elvarsdóttir

Í ljósmyndaröðinni Equivocal eru sagðar margar samhliða sögur. Heimilið er griðarstaður leyndardóma þar sem angurvær stemmning ríkir í hversdagslegri en óraunverulegri kyrrð. Myndirnar eru teknar á Íslandi og Ítalíu, Ungverjalandi og Póllandi en virðast frá landi sem ljósmyndarinn hefur uppgötvað handan við forhengi raunveruleikans.

Katrín Elvarsdóttir (f. 1964) útskrifaðist með BFA gráðu í ljósmyndun frá Art Institute of Boston árið 1993. Katrín var tilnefnd til ljósmyndaverðlaunanna Deutsche Börse Photographic Prize 2009 fyrir sýninguna Equivocal.


Eftirmáli: Markús Þór Andrésson
Hönnun: Halldór Elvarsson

215,9 x 279,4 mm
96 blaðsíður
Innbundin

Enska
Útgáfudagur: janúar 2012
Panta bókina

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is