
Verk Ólafs Elíassonar, Cars in rivers, varð til í samstarfi við íslenska fjallafara og jeppamenn. Það byggist á dirfsku þeirra sem láta óhamin fallvötn ekki hindra sig í að komast leiðar sinnar, láta vaða og lenda oft í vandræðum en koma sér úr þeim aftur. Eftir umfjöllun og auglýsingu frá i8 galleríi 2009 bárust Ólafi um 100 ljósmyndir sem allar sýndu bíla og rútur í kröppum dansi í óbrúuðum ám. Ólafur valdi hluta þessara mynda fyrir sýninguna Limboland í galleríinu og á meðan sýningunni stóð bárust enn fleiri myndir sem sumum var bætt við verkið. Að lokum valdi Ólafur 35 myndir sem mynda hið endanlega verk, Cars in rivers. Þetta verk afhenti Ólafur Listasafni Íslands að gjöf og það var sýnt ásamt fleiri verkum Ólafs í safninu haustið 2010.
Bókin Bílar í ám / Cars in rivers fjallar um þetta háíslenska verk. Verkið fangar sérkennilegt sambýli Íslendinga við eigin náttúru, hugmyndir þeirra um áhættu og frelsi, um möguleika og áræðni og þá örlagahyggju sem er svo rík í íslenskum sögnum: Sá sem einu sinni kemur að vatnsfalli á engra kosta völ nema halda áfram, jafnvel þótt afleiðingarnar geti verið hörmulegar.
Formáli eftir Halldór Björn Runólfsson, safnstjóra Listasafns Íslands.
Inngangur eftir Hjálmar Sveinsson.
Bókin er gefin út í samvinnu við Listasafn Íslands.
170 x 230 mm
44 blaðsíður
35 ljósmyndir í lit + 1 mynd af verkinu Cars in rivers
Mars 2011 (íslenska og enska)