Dagskammtur af leturgerðum
Fyrir alla áhugamenn um letur og leturgerðir er draumadagatalið nú loks fáanlegt. Hver dagur á dagatalinu sýnir eina leturgerð ásamt upplýsingum um bakgrunn, hönnuði og að sjálfsögðu hvar má nálgast hverja leturgerð.
Hér eru samankomnar gömlu góðu leturgerðirnar í bland við hressandi sveiflur í nýjum gerðum. Typodarium 2011 er skyldueign allra sem vinna með og hafa áhuga á letri og leturgerð.
Eingöngu fáanlegt hjá Crymogeu, Barónsstíg 27, 101 Reykjavík. Pantanir sendist á
crymogea@crymogea.is. Takmarkað framboð.
Verð 4.900 kr.