
Ragnar Kjartansson
Fáir íslenskir listviðburðir hafa vakið viðlíka athygli og Endalokin, gjörningur Ragnars Kjartanssonar á Feneyjatvíæringnum 2009. Í rúma sex mánuði, frá júníbyrjun til nóvemberloka, málaði hann fyrir opnum tjöldum fyrirsætu sína Pál Hauk Björnsson á Speedo sundskýlu einni fata í endurreisnarhöll við aðalsíki Feneyja, Canal Grande. Á meðan Sálumessa Mozarts og Wagner snerust á fóninum fylgdust sólbakaðir gestir með listamanninum að störfum í hvítum málaraslopp og mændu á fyrirsætuna reykja letilega og drekka bjór. Eftir því sem á leið hrönnuðust málverkin upp í hallarsalnum og voru orðin vel á annað hundrað þegar yfir lauk. Þau voru fyrst sýnd í Hafnarborg í Hafnarfirði í janúar 2010 en síðan í einu virtasta galleríi heims, Luhring Augustine í New York í júní og júlí 2010 og fara þaðan til fleiri sýningarstaða um heiminn. Ásamt myndbandsverkinu Endalokunum mynda verkin eitt stórbrotnasta íslenska listaverk samtímans, listaverk sem hefur vakið heimsathygli.
Crymogea gefur nú út öll verkin í einni bók, The End - Venezia 2009. Frá fyrsta sumarlega júníverki til ágengra nóvemberverka þegar bjórflöskurnar og verkin hafa hrannast upp sést tíminn verða að verki með mann í sundskýlu í forgrunni.
169 x 209 mm
208 blaðsíður
Júní 2010