Bestu blaða- og tímaritaljósmyndir ársins 2008Árið 2008 er eitt örlagaríkasta ár Íslandssögunnar. Eftir margra ára samfellt sigurskeið hrundu þrír stærstu bankar landsins á nokkrum dögum og íslenskt samfélag var skekið til grunna. Dagana 29. september til 9. október tók ríkið yfir Glitni, Landsbankann og Kaupþing, fyrst með því að leggja Glitni til hlutafé en hina bankana tvo á grundvelli nýrra neyðarlaga. Forsætisráðherra, Geir H. Haarde, flutti þjóðinni dramatískt ávarp 6. október sem lauk með fleygum orðum: “Guð blessi Ísland.” Þá varð hverju mannsbarni ljóst að íslenska þjóðin stóð á krossgötum.
Úrval dómnefndar Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu blaða- og tímaritaljósmyndum Íslands 2008 tekur mið af þessum dramatísku sviptingum. Atburðir ársins 2008 verða ljóslifandi allt frá átökum vörubílstjóra og lögreglu í apríl til þess að íslenska handboltalandsliðið kom sigri hrósandi frá Ólympíuleikunum í Beijing í ágúst. En yfir öllu gnæfa dramatískar myndir af örlagadögunum í október og nóvember þegar Ísland var úthrópað um allan heim sem gjaldþrota land sem vafamál væri hvort ætti sér viðreisnar von. Mótmælin, átökin, eggjakastið og hróp um algjöra umbyltingu samfélagsins. Þessi saga er skráð á einstakan hátt af fremstu heimildaljósmyndurum okkar. Myndir ársins 2008 er minnisvarði um sögulega tíma.
Myndir ársins 2008 kom út í tengslum við sýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands á bestu blaða- og tímaritaljósmyndum ársins 2008 í Gerðarsafni í Kópavogi.
205×250 mm
144 blaðsíður
Myndir ársins 2008 er uppseld