Kvika
Myndverk Hafsteins Austmann 1950 - 2010

Texti eftir Aðalstein Ingólfsson

Hafsteinn Austmann hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem einn af heilsteyptustu listmálurum sinnar kynslóðar. Kornungur ákvað hann að helga sig myndlistinni og eftir nám í Handíða- og myndlistarskóla Íslands hélt hann til Parísar, þar sem hann kynntist nýjustu straumum í franskri abstraktlist sem hafði mikil áhrif á framvinduna í myndlist hans. Eftir heimkomuna árið 1955 hóf Hafsteinn að sýna verk sín með reglulegu millibili og taka þátt í samsýningum íslenskra myndlistarmanna, þar sem hann skar sig ævinlega úr fyrir fágaðar abstarktmyndir sínar, olíuverk jafnt sem vantsliti. Í seinni tíð hefur Hafsteinn lagt æ meiri rækt við vatnslitamyndir sínar, sem vakið hafa heimsathygli, auk þess sem hann hefur gert veggmynd og útilistaverk fyrir opinbera aðila. Hafsteinn hefur haldið um 30 einkasýningar og tekið þátt í miklum fjölda samsýninga um allan heim, auk þess sem verk hans er að finna í söfnum víða um Norðurlönd.

Þessi bók, sem gefin er út í tilefni af 75 ára afmæli Hafsteins Austmann og yfirlitssýngu hans í Gerðarsafni í Kópavogi, inniheldur úttekt á myndlistarferli listamannsins eftir Aðalstein Ingólfsson og mikið úral myndverka frá öllum tímabilum á þeim ferli, olíumálverk, vatnslitamyndir, skúlptúra og veggmyndir.

Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn 2010
Innbundin
303 x 240 mm
176 bls.
Crymogea dreifir
Panta bókina

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is