Blómalandið
Eggert Pétursson hefur á ferli sínum skapað stórbrotinn formheim þar sem íslensk háplöntuflóra hefur leikið aðalhlutverkið . Verk hans hafa notið fádæma hylli sem náð hefur langt út fyrir raðir þeirra sem gleggst fylgjast með samtímalistum og yfirlissýning á verkum hans á Kjarvalsstöðum árið 2007 er í hópi vinsælustu listsýninga sem haldnar hafa verið hérlendis. Sýningarskrá þeirrar sýningar er löngu uppseld og engar bækur sem sýna hin forkunnarfögru olíumálverk hans hafa verið fáanlegar á markaði undanfarin misseri. Það er því fagnaðarefni að Eggert skuli hafa fallist á að gefa út bók með nýjustu verkum sínum sem sýnd eru í Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn frá september 2009 fram til janúar 2010 undir yfirskriftinni Blómalandið.

Í Blómalandinu er ítarleg umfjöllun um list Eggerts eftir Andra Snæ Magnason þar sem skyldleiki verkanna við sögu íslenskra náttúrurannsókna er rakinn og fjallað um sambands umhverfis og listar í verkum Eggerts. „Verk Eggerts Péturssonar sýna að alls staðar, á hverjum fleti jarðar, er að finnna eitthvað athyglisvert og ljóðrænt,“ segir Andri Snær. „Allt er einstakt ef VIÐ gefum okkur tíma til að taka eftir því.“ Formála ritar Ólöf K. Sigurðardóttir listfræðingur og forstöðumaður Hafnarborgar. Í bókinni er einnig að finna ítarlega verkaskrá Eggerts.

Bókin er hönnuð af Hildigunni Gunnarsdóttur og Snæfríði Þorsteins og er mjög óvenjuleg að allri gerð. Hún er „lífræn“ í umfangi og stærð: fæstar blaðsíðnanna eru jafn stórar, í henni eru fjórar stórar „útfellur“ (fold-outs) og hún handbundin með þræði. Þær Hildigunnur og Snæfríð hönnuðu einnig Flora Islandica, safn teikninga Eggerts af íslenskum háplöntum, sem Crymogea gaf út 2008 og fyrir hönnun þeirrar bókar hlutu þær verðlaun í flokki grafískrar hönnunar fyrir prentmiðla í árlegri samkeppni FÍT og silfurverðlaun í flokki bóka og bæklinga í samkeppni evrópskra hönnuða, Art Directors Club of Europe í Barcelona í júní 2009.

Öll verkin í bókinni eru olíumálverk og unnin á síðustu tveimur árum. Eggert Pétursson er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann lauk prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1979 og frá Jan van Eyck listaháskólanum í Maastricht árið 1981. Fyrir verk sín hefur Eggert öðlast ýmsar viðurkenningar, til dæmis silfurverðlaun Carnegie Art Award árið 2006.

Bókin er á þremur tungumálum: Íslensku, dönsku og ensku. Kim Lembeck þýddi textana á dönsku og Anna Yates á ensku. Bókin er gefin út í samstarfi við Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn.

317 x 290mm (hámarkstærð)
33 bls.
8 útfellur
12 olíuverk



Þorsteinn J. ræðir við Eggert Pétursson, í þættinum Káta maskínan (2009)

 





 

Panta bókina

Crymogea ehf. Barónsstígur 27 101 Reykjavík Sími 5110910 / crymogea@crymogea.is