
Páll Stefánsson
Inngang ritar Didier Drogba
Höfundar: Chimamanda Ngozi Adichie og Ian Hawkey
Áfram Afríka er stór og yfirgripsmikil ljósmyndabók eftir Pál Stefánsson þar sem dregin er upp heillandi mynd íþrótt íþóttanna í Afríku: fótboltanum. Þetta er ferðabók um margbrotna heimsálfu þar sem daglegt líf og aðstæður fólks endurspeglast í knattspyrnunni, hvort sem það er í Marokkó eða Suður-Afríku, í Senegal eða Eþíópíu.
Hvergi í heiminum er knattspyrna í heimsklassa iðkuð við jafn erfið skilyrði og í Afríku. Stjörnur á borð við Didier Drogba og Samuel Eto'o koma frá löndum þar sem fæstir spila í skóm og net þekkjast ekki í mörkum. Þrátt fyrir þetta er knattspyrna leikin nánast alls staðar í öllum Afríkulöndum, á götum og torgum, á ökrum, þjóðvegum og ströndum af ástríðu og innlifun sem á ekki sinn líka. Bókin dregur upp heillandi og litríka mynd af þeirri fjölbreytni og þeim krafti sem einkennir knattspyrnulíf Afríkulanda og gefur algerlega nýja og jákvæðari sýn á líf Afríkubúa. Áfram Afríka!
Didier Drogba ritar inngang bókarinnar.
Höfundur inngangs er nígeríski rithöfundurinn og Orange-verðlaunahafinn Chimamanda Ngozi Adichie.
Einn helsti sérfræðingur heims í sögu afrískrar knattspyrnu, Ian Hawkey, ritar eftirmála.
279 x 248 mm
240 blaðsíður
200 ljósmyndir í lit
Júní 2010